Vaktakerfi í Curio Time

Minni vinna við vaktaplanið. Betri yfirsýn yfir vikuna.

Skipuleggðu vaktir, endurnýttu vaktarúllur og sjáðu áætlaðan kostnað á einum stað. Þórvin hjálpar þér að hanna mynstrið og starfsfólkið sér vaktirnar sínar í Curio Go.

Ekkert kreditkort þarf.

Vikan á einum skjá

Allar vaktirnar í einni sýn.

Sjáðu starfsfólk, vinnudaga og lausar vaktir á sama stað. Skipuleggðu eina viku, tvær vikur eða heilan mánuð og tengdu vaktir við verkefni og vinnustaði.

Dæmi úr Curio Time Pro. Sýnigögn.
  • Vaktir og vinnustaðir

    Réttur starfsmaður, dagur og tími.

  • Lausar vaktir

    Auglýstu vakt sem bíður úthlutunar.

  • Yfirsýn yfir tímabilið

    Sjáðu stundir og samtölur í planinu.

Þórvin · vaktarúllur

Hannaðu vaktarúllu með samtali.

Lýstu því hvernig vinna og frí eiga að skiptast. Þórvin mótar tillögu sem þú yfirferð og lagar áður en hún verður að vöktum hjá starfsfólkinu.

„Þrír dagar í vinnu og tveir í frí.“
Vinna
Vinna
Vinna
Frí
Frí

→ endurtekið mynstur

Dæmi úr Curio Time Pro. Sýnigögn.
  1. Lýstu

    Segðu hvernig vinna og frí skiptast.

  2. Yfirfarðu

    Lagaðu mynstrið og veldu vaktasniðmát.

  3. Vistaðu

    Gefðu rúllunni heiti og yfirfarðu tímana.

  4. Úthlutaðu

    Veldu starfsmann og upphafsdag.

Þú yfirferð tillöguna og ræður hvað er vistað og hverjum rúllunni er úthlutað.

Minni endurtekning

Gott plan þarf ekki að byrja frá grunni.

Vistaðu sniðmát fyrir dag-, kvöld- og næturvaktir. Notaðu rúllur fyrir endurtekið mynstur og snjallafritun þegar þú vilt færa fyrirliggjandi vaktir á nýtt tímabil.

Betri yfirsýn

Sjáðu áætlaðan vaktakostnað.

Fylgstu með samtölum á meðan þú skipuleggur. Áætlunin byggir á skráðu tímaverði og lengd vakta.

Endanleg laun byggja á skráðum tímum, kjörum og launavinnslu.

Sama plan. Allt teymið.

Frá vaktaplani að yfirförnum tímum.

Starfsfólk skoðar vaktirnar sínar í Curio Go eða Curio Station. Skráðir tímar fara síðan í yfirferð og samþykki hjá stjórnanda.

  • Curio Time Pro

    Skipulag og yfirferð á vefnum.

  • Curio Go

    Vaktir og tímaskráning í símanum.

  • Curio Station

    Sameiginleg PIN-stimpilklukka á vinnustaðnum.

Gott að vita áður en þú byrjar.

Get ég notað sama vaktamynstrið aftur?

Já. Þú getur vistað vaktarúllur og úthlutað þeim með völdum upphafsdegi. Snjallafritun hjálpar líka við að endurnýta fyrirliggjandi vaktir.

Get ég breytt tillögu Þórvins?

Já. Þú yfirferð og lagar mynstrið áður en rúllan er vistuð. Úthlutun á starfsfólk er síðan sérstakt skref.

Verða áætlaðar vaktir sjálfkrafa að samþykktum tímum?

Nei. Vaktaplan er áætlun. Skráðir tímar eru yfirfarnir og samþykktir í tímaskýrslum áður en gögn fara áfram í launavinnslu.

Prófaðu næsta vaktaplan í Curio Time.

Settu upp fyrstu vaktirnar eða fáðu Þórvin til að hjálpa við vaktarúllu. Prófaðu kerfið með þínu starfsfólki og sjáðu hvernig skipulagið nýtist í daglegri vinnu.

Ekkert kreditkort þarf.

Aðgangur samstarfsaðila

Þessi kynning er fyrir samstarfs- og endursöluaðila Curio Time. Sláðu inn samstarfskóðann til að opna hana.